









Okkar Hveragerði
Jólablaðið er komið út
Jólablað Ykkar Hveragerðis er á leið í hús til allra íbúa í Hveragerði. Því miður hefur veður og færð tafið útburð en þau sem ekki enn hafa fengið blaðið eiga von á því á næstu dögum. Blaðið er stútfullt af efni og hægt er að lesa það með því að smella á myndina hér að ofan.







Fjölmenni á Street Ball móti
Það var góð stemning á Street Ball mótinu okkar á laugardaginn.
11 lið tóku þátt í tveimur aldursflokkum og fjölmörg verðlaun voru veitt.
Eftir mótið gæddu keppendur og áhorfendur sér á gómsætum pizzum frá Hofland.
Takk fyrir þátttökuna.

















Opnun kosningaskrifstofu á Hótel Örk







Sandra leiðir lista Okkar Hveragerðis
Sandra Sigurðardóttir, íþrótta- og heilsufræðingur og athafnakona skipar efsta sæti lista framboðsins Okkar Hveragerðis sem býður fram í sveitarstjórnarkosningunum í maí næstkomandi. Framboðslisti var kynntur á fundi á Rósakaffi í Hveragerði í gær.
Í tilkynningu segir að Okkar Hveragerði sé óháð bæjarmálafélag skipað íbúum sem hafi áhuga á bæjarmálum í Hveragerði og beri velferð íbúa fyrir brjósti.
„Árið 2018 hlaut Okkar Hveragerði 33% atkvæða og tvo bæjarfulltrúa. Á framboðslistanum eru íbúar með fjölbreyttan bakgrunn, menntun og reynslu.
Sandra Sigurðardóttir, íþrótta- og heilsufræðingur og athafnakona skipar efsta sæti listans. Í öðru sæti er Njörður Sigurðsson bæjarfulltrúi, sagnfræðingur og aðstoðarþjóðskjalavörður í Þjóðskjalasafni Íslands. Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, lögmaður og söngkona skipar þriðja sæti listans, í fjórða sæti er Hlynur Kárason, húsasmíðameistari og varabæjarbæjarfulltrúi og Atli Viðar Þorsteinsson, verkefnastjóri og plötusnúður, í fimmta sæti.
Okkar Hveragerði leggur áherslu á aukið gagnsæi í ákvarðanatöku bæjarins, vandaða stjórnsýslu, öflugt atvinnulíf, meira rými fyrir íbúalýðræði, styrkja stöðu minnihluta- og jaðarsettra hópa, uppbyggingu húsnæðis, efla gott íþróttastarf sem allir aldurshópar geta haft greiðan aðgang að óháð stéttastöðu, ríka áherslu á skóla- og velferðarmál og að bæjarstjóri verði ráðinn á faglegum forsendum,“ segir í tilkynningunni.
Listann skipa:
-
Sandra Sigurðardóttir, íþrótta- og heilsufræðingur og athafnakona
-
Njörður Sigurðsson, sagnfræðingur og bæjarfulltrúi
-
Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, lögmaður og söngkona
-
Hlynur Kárason, húsasmíðameistari og varabæjarfulltrúi
-
Atli Viðar Þorsteinsson, verkefnastjóri og plötusnúður
-
Sigríður Hauksdóttir, ráðgjafi í félagsþjónustu
-
Jóhann Karl Ásgeirsson, háskólanemi
-
Valgerður Rut Jakobsdóttir, náms- og starfsráðgjafi
-
Eygló Huld Jóhannesdóttir, deildarstjóri í heimaþjónustu og sjúkraliði
-
Eydís Valgerður Valgarðsdóttir, nemi
-
Páll Kjartan Eiríksson, öryrki
-
Guðjóna Björk Sigurðardóttir, viðskiptafræðingur
-
Kristján Björnsson, húsasmíðameistari
-
Anna Jórunn Stefánsdóttir, talmeinafræðingur

Samkvæmt 6. tölul. reglna Hveragerðisbæjar um framlög til stjórnmálasamtaka er bjóða fram til sveitarstjórnarkosninga skulu stjórnmálasamtök sem hljóta styrk frá bænum birta ársreikning sinn á opinberum vettvangi.
Á vef Ríkisendurskoðunar er hægt að skoða alla ársreikninga Okkar Hveragerðis:
Ársreikningur 2018
Ársreikningur 2019
Ársreikningur 2020
Vilt þú styrkja bæjarmálafélagið ?
Ef þú vilt leggja bæjarmálafélaginu lið getur þú lagt inn frjálst framlag inn á reikning Okkar Hveragerði. Reikningsnúmer: 0314 - 26 - 670418 Kennitala:kt.6704181460